Ađalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Íslandsferđ:D

Kínakínakínakínakína

16. maí 2008 klukkan 00:56
Jæjja nú er maður bara að fara til Kína eftir nokkra tíma liggur við:D

BÚIN  að hlaða allar græjur. nú er bara að vakna snemma og redda öllu sem á eftir að redda og svona.

Veit ekki afhverju en fílingurinn er ekki alveg kominn, en ég hugsa nú að hann komi þegar maður klæðir sig í ferðafötin og svona. :D

Var að mata ipodinn af mússík þannig það verður nóg að hlusta á.

Hafiði það gott á kalda Íslandi meðan við erum úti:D híhí

kv. Fanney Björk sem ætlar að koma sólbrún heim:D

Ding dong

14. maí 2008 klukkan 23:33
Komin með skvísu neglur ójá...sátt með það mahr, fór til frænku Kalla og hún gerði þær:D



Varð að fá mér svona núna þar sem ég er að fara til Kína og ekki á leiðinni að stökkva næstu 4 vikurnar, þannig þetta var hrikalega gott tækifæri:D

Annars var ég að kveðja krakkana mína sem ég er að þjálfa í dag. Soldið leiðinlegt en svona er þetta. Svo bara skellti ég mér að hitta Þóru. Góður ísbíltúr sem fór líka smá í pool að hitta strákana.

Annars er ég að fara versla með Karli mínum á morgun, seinasta dótið sem maður þarf:D


kv. Fanney Björk

Hef ekkert ađ segja

13. maí 2008 klukkan 19:43
3 dagar, fór að versla í dag með Sif það allra nauðsynlegasta, held ég sé á góðri leið að verða veik. Veit ekki hvað er málið.

Sótti málverkið mitt og svona og keypti eitthvað dót. Er að fara klára þjálfa á morgun svo er það bara versla með Kalla á fimmtudaginn og svo klára að pakka. Hlakka svo til....

kv. Fanney Björk

Forever and ever

11. maí 2008 klukkan 16:16
Það eru 5 dagar í Kína. Er ekki búin að skipuleggja mikið.
En hinsvegar fór ég með Þóru út á lífið í gær og það var mjög skemmtilegt og skrautlegt. Mjög sáttt með kvöld. Enda skemmtum við okkur konunglega. Bærinn var nú bara opinn til 3 en það var alveg hægt að djamma. Það var líka brjálað mikið af fólki í bænum. Ég vissi nú að það yrði mikið því að ég var að vinna í gær og það var eins og það væru jólin það var svo  mikið að gera. Liggur við að við færum að hleypa inn í hollum. Dýrka þegar það er mikið að gera. Svo miklu skemmtilegra. En þetta var seinasti dagurinn minn í vinnunni næstu 4 vikurnar. Ætla mér að fara í bíó í kvöld með Siggu minni.
Svo þarf ég að fara gera ýmislegt sem varðar útlöndin. Plana ýmislegt. Keypti mér geggjaðslega flott bikini. Er svo rosalega ánægð með það.:D Mjög góð kaup þar.
Annars er dagurinn í dag bara slökun held ég. Vaknaði reyndar eldhress í morgun um svona 9 leytið og ég sagði við sjálfan mig abbabbb þetta er of snemmt. Þannig ég svaf alveg til 12 svo hehe.
Svo dreif maður sig í það að ryksuga gólfið í öllu húsinu. Svo er ég núna að taka til í herberginu mínu. Því það er algjör stía. Með tónlistina í botni. Heavy gaman:D

Hef þetta ekki lengra

kv. Fanney Björk

Hej allihopa

06. maí 2008 klukkan 22:04
Eins og sést hérna í skoðunarkönnuninni minni þá er Liverpool sigurvegari. En alla vega þá er ég að fara útskrifast úr menntaskóla og það eru gleðitíðindi.
Ég og krakkarnir úr myndlist héldum sýningu á kaffihúsinu Rót um helgina, og þar settum við upp geggjaða sýningu og er ég með myndir af því sem ég ætla að setja um leið inná og myndirnar getað komið. En þær eru eitthvað að taka sér langan tíma í að komast á netið.
En í dag tók ég fyrsta prófið mitt á þessari önn og jafnframt næstsíðasta ever alla vega þangað til ég fer aftur í annan skóla sem er semsagt ekki menntaskóli ójá. Ég er svo happy að vera fara útskrifast að það er ekki eðlilegt.
En ég er samt ekkert smá ánægð að hafa farið í FG og farið á myndlistarbraut, því mér finnst það miklu meira my thing og ég fíla það alveg í botn. En maður fær nú alveg nóg af öllu en í þessu tilviki er það menntaskóli ekki listin:P
Núna eru 10 dagar í Kína og það er svo hrikalega stutt, að við erum liggur við að fara á morgun.
Já og auðvitað við erum komin með íbúð í Svíþjóð ég og Kalli, ekkert smá næs íbúð. Svo það verða allir að heimsækja okkur meðan við erum úti. Alveg feikinóg pláss, alla vega meira en nóg:D

Núna er ég að læra líffræði og það er sosum ágætt fag. En samt um leið alveg hundleiðinlegt vegna þess að maður væri auðvitað bara til í að gera allt annað en að læra núna

En ég klára þetta á fimmtudag og það er bara rosalega stutt í það.
En fyrir prófið í morgun þá var ég svo stressuð að hjartað ætlaði út. Það var hrikalega óþægilegt og ég titraði öll eins og ég væri svona að hrista fótinn en hann gerði það bara sjálfur, soldið skrítið hehe. Konan sem sat í stólnum við hliðin á mér hristist öll. Ég vona að það hafi ekki verið vegna þess að ég var að hrista hana. En svo kom ég inn í prófið og þá loksins lagaðist ég eins og venjan er bara.



Hérna er myndin af bolunum mínum á sýningunni og málverkinu mínu:D Frekar léleg mynd en þetta verður að duga:D

Hafiði það gott,

kv. Fanney Björk

Dimmisjon og 2 árshátíđir:D

03. maí 2008 klukkan 11:08
Hæhæ þá er dimmisjon búið og árshátíð vínbúðarinnar og árshátíð Háskóla Íslands, en ég er búin að gera þetta allt. Rosalega skemmtilegt, læt fylgja hérna myndir með þessu bloggi.

Byrjum á árshátíð HÍ

Ég og Kalli:D

Rúnar og Kalli

Salvör og Jón Þór

Þórir í stuði:)

Ég og Salvör ljón, eða erum við tígrisdýr:P

Boys:)

Berglind og Anna Jóna

Heiðbjört og Karítast.

Árshátíð vínbúðarinnar

Ég og Kalli

Borðið okkar.:)

Mína:)

Ég og Kalli í villtum dans og að sjálfsögðu syngjandi með.:)

Ósk og Pálína:)

Jæja þá koma nokkrar dimmisjon myndir:)

Ég og Sif soldið þreyttar um morguninn:)

Við tvær, eftir að hópurinn var búinn að skemmta upp á sviði:)

Hugrún, Ásta, Fanney og Sif

Rottur og kærleiksbirnir:)

Ég og Anna í matnum áður en við fórum í keiluna

Bíta:)

Franzí Rat

Sibba og Franzí Rat

Ég, Sif, Eva

Svo gaman:D

Eg aftur:)

Hópurinn og Sif að bíða eftir strætó

Ánægð rotta:)

Eva og flotta hárgreiðslan og Heiða:)

Anna og ég fínar um í kvöldmatnum:)

Ég og Sif í kvöldmatnum

Ótrúlega góður matur:D

Herru þá held ég að þetta sé komið. ....ég veit að það eru fullt af myndum af mér, en þið verðið bara að þola það þetta er mitt blogg:P híhí

En ég er núna að læra á fullu undir lífeðlisfræðina, í alvöru væri ég frekar til í að vera úti að reyta arfa eða eitthvað. Nenni þessu tæplega en þetta er samt skemmtilegt. Maður er auðvitað alltaf til í að gera eitthvað annað en að læra.

En sýningin okkar opnaði í gær. Ég er að sýna bæði málverkið mitt og svo bolina sem ég bjó til sem lokaverkefni í myndlist. Því ég er auðvitað að fara útskrifast:) Tók myndir af því, set þær seinna inná, því þetta er orðið svo langt blogg og ég á eftir að setja myndirnar inná tölvuna.
En semsagt sýningin stendur yfir þessa helgi. Frá fös í gær til Sun. Þannig endilega kíkiði, þetta er semsagt á Cafe Rót niðrí bæ, svona ská á móti Pizza King. Man ekki adressuna nákvæmlega:)
En þetta er mjög flott sýning að mínu mati, alla vega er ég ánægð með mitt:)

hafiði það gott og gangi ykkur vel í prófunum:)

kv. Fanney Björk

Svíţjóđ

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit