Ađalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Íslandsferđ:D

Áramótagleđi

31. desember 2007 klukkan 17:09
Reyndi að blogga á nýja iphoninn minn í gær, það var ekki alveg að virka, kenni þessu bloggar kerfi um...upppsettningin á þessu er ekki góð. En alla vega. Það er að koma nýtt ár svo ég óska öllum:

GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG VONA AÐ ÞAÐ NÝJA VERÐI FRÁBÆRT!!

En já það hefur ekki mikið gerst undanfarið. Var alveg brjálað að gera í vinnunni í dag. Það var líka svo heitt inní búðinni, hélt að fólk færi bara að líða útaf liggur við.

Ég er komin í áramótadressið alla vega og við förum að rúlla til bróður pabba. Hlakka bara virkilega til kvöldsins.:D Það eru svo allir að fara á nasa. Þannig það verður þvílíkt mikið stuð mahr.

Svo fæ ég áframhaldandi vinnu sem er frábært, þá verð ég með 2 vinnur og fæ þá örgla dágóðan pening áður en maður fer til kína:D

En alla vega þangað til næsta blogg kemur þá segi ég bara hafiði það rosalega gott og fariði vel með ykkur:)

kv. Fanney Björk

Komin međ jólavinnu, vívíví

12. desember 2007 klukkan 09:51
Jess náði að vakna í morgun, langaði ekkert frammúr, en síðan borðaði ég og svo óvart vakti ég alla á heimilinu, systir mín svaf yfir sig semsagt allt í lagi að vekja hana. Þannig það voru fleiri en ég sem vildu bara sofa. Kalli er að fara í próf númer 2 í dag. Bara 3 eftir hjá honum og ég á bara 1 eftir og það var bara 1 fyrir hehe. Það próf er á morgun hjá mér, sem ég ætla að massa. Reyndar er allt efnið á ensku þannig maður verður að einbeita sér enþá harðar að textanum og reyna að þýða og svona. En þetta kemur allt með kalda vatninu.
Gaman að segja frá því að ég fékk vinnu í gær, helt í alvöru að ég myndi vera vinnulaus um jólin en neinei. Mín bara sótti um í átvr og fékk það. Fínt jólastarf. Ánægð með það...
En þið segið það, jólasnjórinn sem ég talaði hérna um í seinustu færslu fór í óveðrinu í fyrrinótt. Sjæsen, tjaldið sem ég dreg fyrir gluggana mína voru öll á hreyfingu og ég gat svarið fyrir að opinn væri glugginn. Kalli tékkaði á því og sagði neinei hann er ekkert opinn....ég sagði að það gæti ekki verið göt á glugganum...því tjaldið hreyfðist ansi mikið. Svo hafði gaurinn sem maður festir gluggann aftur fest á milli. Svo það' var í rauninni opið.
Byrja í vinnunni á föstudaginn, hlakka bara til. Það er einmitt alltaf svo mikið að gera á föstudögum, því helgin að koma og eg byrja akkurrat á erfiðum degi sem er bara frábært:) Vona samt að það verði fleira ungt fólk sem verður að vinna með mér. Sá bara eina konu, sem ég held að sé fastastarfsmaður og vinnur ekki yfir hátíðarnar. En það kemur bara allt í ljós
Segi ekki meir í bili vegna þess að ég ætla rumpa þessum lærdómi af, svo maður fái sómasamlega einkunn í essu. En vá hvað eg hlakka til að fá einkunnirnar mínar..fæ þær á þriðjudaginn næsta. dudduru.
Ég er byrjuð að hlakka ekkert smá til jólanna.
Hef þetta ekki lengra...
kv. Fanney Björk

Blogg blogg blogg já

06. desember 2007 klukkan 12:26
Jólin eru að koma, já snjórinn er kominn. Ég er búin að skila öllum verkefnum sem þýðir það að ég á bara eftir að taka eitt próf og það er eftir rúma viku;)

En vá þegar ég kom upp í morgun þá sá ég bara út og þá bara fjúff snjóóóóór. Bíllinn minn var alveg þakin. Núna væri ég bara til að vera lítil og fara búa til snjókalla og snjóengla, ekki það að ég geti það ekki. 

Næsta ár verður örugglega með þeim skemmtilegustu árum lífs míns....
-ég fæ að stökkva
-ég fer til Kína með Kalla
-ég flyt út til Svíþjóðar
Hlakka svo rosalega til:)

Ég eignaðist litla frænsku 25. nóvember. Hún er ekkert smá sæt.

kv.Fanney Björk

Svíţjóđ

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit