himm humm hamm
26. september 2007 klukkan 14:21
Skólinn kominn alveg á fullt, og núna þarf maður að gera alveg fullt. Næsta önn verður þvílíkt full. Þarf að gera einum of mikið eða kannski svona meira 3 of mikið eða svo. Kemur allt í ljós. Verður allavega rosa mikið að gera. Ég og Kalli erum núna að skoða mikið skóla í Svíþjóð. Sjá hvar er best, erum núna komin með Lund. Svo er reyndar okkar nám líka kennt í Gautaborg. Kemur bara allt í ljós hvað maður gerir. En við förum líklega út næsta sumar.
Er bara að þjálfa núna með skólanum og það eru rúmlega 50 iðkendur skráðir hjá mer og það er sko ekkert smá mikið, en hingað til hafa bara mætt um 35 í einu.
Veit ekki beint neitt hvað mig langar að læra, er núna að spá í að fara í iðjuþjálfun, líst alla vega mjög vel á það. Svo er spurning með grafísku hönnunina sem ég ætlaði að fara í geggjað lengi. Eins og ég segi þá kemur þetta bara allt í ljós. Tók einmitt áhugasviðskönnun og hún sagði mér að ég væri umhyggjusöm og eitthvað í þá áttina, þannig að ég ætla að fara í eitthvað solleis.
kv. Fanney Björk

allt og ekkert
16. september 2007 klukkan 12:09
Ný skólavika að fara byrja aftur á morgun. ví. Ég og Kalli spiluðum póker um helgina. Ég stóð mig bara ágætlega miðað við að ég hef ekki gert þetta oft. Annars höfum við Kalli verið að skoða skóla stanslaust á netinu. Það er mikið stuð.
Hef ekki mikið að segja en ég ætla að fara skoða þetta betur. Er semsagt að fara þjálfa aftur ámorgun. Yfir 30 krakkar mæta alltaf, og það er bara slatti. Sérstaklega vegna þess að ég er bara með einn aðstoðarþjálfara. En þetta kemur allt í ljós. Hefur alveg gengið upp hingað til.

gengur vel
06. september 2007 klukkan 18:46
Já læknisheimsóknin búin. Það gekk bara vel, fyrir utan það hvað ég er mikill kjúklingur þegar kemur að tali um liðabönd og svoleiðis hluti. En hann tók saumana og ég ákvað bara að leggjast niður. Svo það færi ekki að líða yfir mig þarna. Ég er núna byrjuð að geta labbað. Fer síðan aftur til læknis eftir 5 vikur til að sjá fótinn og svona. Þannig að þá nokkurn veginn veit ég hvort ég megi fara hlaupa og svona.
Það hefur verið gaman að þjálfa. Rúmlega 40 krakkar að æfa hjá mér. Svo það er nokkuð gott.
Núna þessa stundina er ég að skoða skóla á norðurlöndunum til að fara í grafíska hönnun. Er búin að finna 2 og líst mjög vel á 1 af þeim. Svo er frjálsíþróttavöllur þarna nálægt. Sem er mjög gott.
kv. Fanney Björk
Very nćs yes
05. september 2007 klukkan 10:52
Jamm læknir á morgun, er búin að hlakka til alla vikuna því á morgun losna ég við þetta af fætinum og vonandi get ég eitthvað gengið. Ætla alla vega líklega að æfa mig að ganga yfir helgina, þá þarf ég ekki að fara á hækjum í skólann á mánudag vonandi. Ég er með puttana í kross:D
Annars byrjaði ég að þjálfa á mánudaginn og það var rosa gaman fyrir utan það að ég var á hækjum og það er bara ekkert það auðvelt. Frekar leiðinlegt. En ég er að fara þjálfa aftur í dag og það verður örugglega svipað gaman:D
Annars segi ég ekki margt. Ég er búin í skólanum. Mætti klukkan 8 og var bara til 10...heavy næs sko. Málið er nefnilega þannig að ég er bara með einn kennara sem kennir mér öll fögin sem ég er í og ef hann þarf að fara eða gera eitthvað þá er ég bara í fríi. Svo það er mmjög æðislegt.