Margt búiđ ađ gerast!
En alla vega höfum við Kalli verið að versla jólagjafirnar, það hefur nú ekki gengið eins vel hjá mér og honum og ég á eilla allar gjafirnar eftir sem er ekkert það gott. Ætlum að fara versla líka á morgun. Reyndar þarf ég að fara á morgun og finna eitthvað handa honum. Strákar eru erfiðir í svona gjöfum verð ég að segja. Ég er búin að vera leggja höfuðið í bleyti og er held ég komin að góðri lausn á jólagjöf:)
En við fórum í gær í stúdentsveislu Guðgeirs. Hann útskrifaðist úr Fg í gær. Þar var mjög gaman. Það var reyndar lítið um stelpur þegar leið á kvöldið, en það var bara í besta lagi. Svo fórum við frekar snemma heim eða um hálf 1 leytið vegna þess að Kalli þurfti að mæta til augnlæknis í morgun.
Soffía semsagt tvífótbraut sig þegar hún ákvað að fara til Akureyrar, hún var búin að vera á Akureyri í ca. 3 tíma eða svo. Ekki gaman það og núna liggur hún fyrir framan sjónvarpið allan daginn og þarf að gera það í 6 vikur, vegna þess að hún má ekki stíga neitt í fótinn í allan þann tíma. Það er bara þvílíkt og annað eins. Hvað kemur ekki fyrir Soffíu í alvöru. En það er bara skondið allt sem kemur fyrir hana fyrir auðvitað utan þetta leiðinlega atvik. Fyrsta skipti sem einhver í fjölskyldunni er í gifsi yfir hátíðarnar. :S
En í kvöld þá ætlum við að dansa af okkur fæturnar á Jólaballi háskólanema eða eilla verkfræðinga því þeir eru með þetta. Það verður örgla geggjað stuð. Fyrirparty hjá vini Kalla og svona. Það verður vonandi stuð. Er alla vega að taka mig til fyrir það.
Segjum þetta gott í bili
Kv. Fanney Björk
Prófin búin,loksins loksins
Ég semsagt skellti mér til Sifjar í gær og við lærðum félagsfræði bara utan af og hvernig gekk okkur, jújú alveg ótrúlega vel....Rústuðum prófinu svo sannarlega:D hehe

EN í hádeginu er ég að fara á stælinn með Kalla mínum. Hann er núna í prófi alveg til 12 eða eitthvað, ótrúlega langt próf. Svo er ég aftur að fara hitta Sif og þá erum við að fara gera eitthvað saman...:D
Svo bara veit ég ekki meir...jújú fer síðan náttla á æfingu á eftir...stuð dagur.
kv. Fanney Björk very happy
All I Want For Christmas Is YOU(8)
En alla vega þótt ég sé svona syngjandi glöð þá þýðir það ekkert að ég er búin í prófum, neinei, var að koma úr einu stykki prófi og gekk bara ágætlega eða vona það alla vega. Svo erfitt að vita hvort maður hafi sagt rétt eða eitthvað hehe. EN mér gekk samt vel..
Þá er það félagsfræðin á morgun, ætla að skella mér til Sifjar og við ætlum aðeins að fara yfir hana saman. yeah:D
Herðu jólasveinninn kom víst í gærkvöldi.
Spurði krakkana sem ég er að þjálfa hvenar jólasveinninn kemur eiginlega og þau næstum skríktu að hann kæmi í kvöld semsagt í gær hehe. Svo eru allir búnir að plana hvað þeir ætla að fá í jólagjöf og svona. Þegar ég var á þeirra aldri man ég ekki eftir að hafa getað fundið hvað ég vildi eða sett það á lista, eða ég á alla vega erfitt með að gera svona lista, þau vita alveg hvað þau vilja sem er bara gott. Kannski var ég þannig líka man það ekki:D:D híhíHlakka til á morgun, það er eitthvað svo stutt í það að ég sé búin í prófum, soldið skondið. En ég hlakka líka svo til að fá útúr prófunum:D jebb
herru hef þetta ekki lengra, ætla aðeins að slaka á áður en ég dembi mér í félagsfræðina!:D
kv. Fanney Björk
2 próf eftir hú ha
And then there were 2. Jebb á bara 2 próf eftir. Hehe. Mér finnst þetta sosum allt í lagi núna því það eru bara 2 eftir, líður eins og það sé bara mjög lítið eftir hehe. En alla vega það er lista og menningarsaga á morgun og ætla ég að taka það með trukki eins og ég gerði með myndlistarsöguna í dag. Langar hinsvegar ekkert í félagsfræði prófið en það er önnur saga.
Er svo ekki að nenna að læra núna einhvern veginn en maður verður....koma svo. Hlakka til að slaka á og bara fara í búðir. Alltaf öll bloggin mín eins yeah.
En alvöru hlakka geggjað til... Greyið Kalli fer í fyrsta prófið sitt daginn sem ég fer í seinasta prófið mitt. Get ekki sagt að það sé mjög skemmtilegt fyrir hann hehe.
En hef þetta ekki lengra, með jólakveðju.
Fanney Björk
Allt tekiđ međ trukki
Svo ætlum við að fara í afmælið hennar Heyju á laugardaginn semsagt þann 16. des, þannig maður fer bara í heljarinnnar reisu útí Garð:) hehe:)
En ég er búin að fá nokkrar einkunnir sem eru svona annareinkunnir ekki með lokaprófi inn í. En það er allt í gúddí. Bara virkilega sátt með mig:)
Gaman að vita hvað maður fær útúr áföngunum sem var bara teikning, hvernig hægt er að mæla það út. Kemur í ljós:) Hlakka virkilega til bara.
kv. Fanney Björk
BLogg
Fyrsta svona alvöru prófið var í dag:D Það var íslenskan, vona að ég hafi bara náð henni með góðri sæmd, held það nú. Er reyndar að drepast í bakinu vegna mikillar setu í gær. Vaknaði klukkan 7 og byrjaði að læra um 8 alveg til hálf3 um nóttina og mér er bara soldið mikið illt. Enda ekkert gott að sitja svona lengi.
Núna er alveg vika í næsta próf og svo koma 3 próf í röð. Herðu svo er mín að fara til Möltu í páskafríinu með frjálsunum:D Yeah hlakka ekkert smá til. Sé fram á að það verði bara svona 2 próf sem ég tek í vor, þannig það verður ekki eins törn og ég hefði tekið í Verzló sem betur fer segi ég nú og skrifa.:D
En ég er farin að hlakka svo til jólanna, bara frí. Frí frí frí. Svo næs sko. Farið að kitla í puttana því mér hlakkar svo til þann 13 klukkan 10:30 en þá er prófið búið, mitt seinasta.
Herðu svo er náttla hefð hjá okkur Sif að fara á American style eftir prófin og við höfum alltaf gert það. Bæði eftir jólaprófin og vorprófin. Þetta er svona okkar thing. :D Ég hlakka svo til:D En samt það er geggjað stutt í að prófin verði búin. Sem er frábært.
Fyndið í dag. Það voru krakkar að taka íslenskupróf í áfanga 303 og það voru allir brjálaðir frammi. Því prófið var víst alltof erfitt. Sibba var einmitt í því prófi. Hélt að andlitið ætlaði að detta af henni þegar hún labbaði út. hehe.
Kv. Fanney Björk