Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Íslandsferð:D

Allt og ekkert

28. ágúst 2006 klukkan 20:04

Hurðu það eru nokkrir hlutir sem ég þarf að nefna í þessari færslu....

  • Ég fræg:P             
  • Allsber karlmaður
  • Skólinn                  
  • Mótið um helgina  

Ég er fræg vegna þess að ég kom í sjónvarpinu í gær. Myndaðist svona rosalega vel, get ekki ímyndað mér að einhver hafi séð það nema sá aðili hafi tengst frjálsum á einhvern hátt.

Allsberi karlmaðurinn var í tíma hjá mér í dag. Og hvað þurfti ég að gera, jújú ég þurfti að teikna hann. Frekar óþægilegt því að það var ekki flík á líkama hans. Fólkið var nú reyndar frekar rólegt yfir þessu. Skil ekki hver vill vinna við svona starf. En ok hann ræður þessu. Þarf örgla að teikna hann aftur á morgun og mig langar ekkert sérstaklega til þess!

Skólinn er núna bara að síga af stað, enn sem komið er líst mér bara vel á þetta. Það er bara gaman:) Fínir tímar og solleis, er svo með Sif í einum tíma. Það er frekar fyndið að það gerðist, bjóst alls ekkert við því. Annars er frekar fyndið að maður þarf að fara úr skónum. Gerir það að verkum að maður hugsar sérstaklega um hvaða skó maður fer í skólann, en eins og maður gerði það ekki fyrir en núna fær maður bara ekkert að vera í þeim.

En já mótið um helgina, fór bara uppúr öllum vonum sem allir hefðu hugsað sér, reyndar ekki árangurslega séð hjá mér en hjá flestum. Mér gekk ágætlega, ég var ánægð að lenda í fyrsta sæti. Árangurinn var 3.25, hefði stokkið hærra hefði ég ekki verið búin að stökkva 18 sinnum eða svo. Var að reyna var á lengri atrennu. En ég get sosum sjálf um mér kennt. Við lentum í 5 sæti en hefðu getað lent í 4 þannig allir eru sáttir. Ég er bara fegin að vera komin með langa atrennu fyrir næstu helgi. En ég er á leiðinni á norðurlandamót 19 ára og yngri á föstudaginn fram á sunnudag. Hlakka bara til. Ætla að reyna massa sumarið þá. Vonum að það gerist.. Því þetta er seinasta NM hjá mér í þessum aldri, því auðvitað er ég orðin 19 ára gömul.

Er farin að læra heima.

Kv. Fanney Björk

Skólinn að fara byrja:D

21. ágúst 2006 klukkan 18:05
Já þá er skólinn bara að fara byrja, mér finnst þetta sumar búið að líða ótrúlega hratt. Ég er komin með vinnu fyrir veturinn svo ég er bara sátt, núna er ég orðin aðalþjálfari litlu frjálsíþróttakrílanna í breiðholtinu þannig ég er bara sátt. Soffía er að fara þjálfa eldri litlu krílin semsagt 12-14:)

Þetta verður örgla fjör. Líka þá fæ ég loksins einhvern pening því eg vann ekkert í sumar, nema bara smá. En ég er semsagt að fara að sækja stundatöfluna á morgun og svo byrja ég í skólanum á miðvikudaginn. Svo Fer ég til Sauðarkróks á föstudaginn, kem heim líklegast á laugardeginum aftur, svo fer ég til Svíþjóðar í vikunni þar á eftir þá á föstudegi og kem aftur á mánudegi. Svo er mínum ferðalögum lokið í bili.

EN ég hlakka ekkert smá til að byrja í nýjum skóla. Verzló var að byrja í dag og bekkurinn sem ég hefði verið í er ansi fámennur hehe, bara 18 manns. Svo sá ég að einn bekkurinn var 32 manns, frekar mikið.

kv. Fanney Björk

Allt tómt

17. ágúst 2006 klukkan 16:40
Það gerist einhvern veginn svo lítið að maður hefur ekkert að blogga um.
Keppti um daginn, það gekk nú ekkert það vel, vonum að mér gangi betur á mánudaginn, en þá verður annað mót. Gvö herru Magni var í bottom 3 í gær, held hann hafi bara verið ánægður með það, sem er frekar fyndið. EN hann er nú ekkert á leiðinni að fara úr þættinum. Væri bara best ef hann myndi lenda í 2 sæti or some.

Ég er orðin húkt í sumum leikjum í tölvunni, það er náttla
bubbles, sem allir þekkja, svo connect 2 og svo er einn í viðbót sem er eins konar vélritunarleikur, en hann heitir arachnidfalls. Myndi mæla með að tékka á þeim hehe. Eins og þið sjáið hef ég ekkert beint að tala um vegna þess að það er ekkert að gerast neitt rosalegt í lífi mínu sem er frásegjanlegt. Hægt er að klikka á leikinn, ef maður vill spila hann:D

En á næstunni er ég að fara byrja í skólanum, fara til augnlæknis, svo fara til Sauðarkróks, svo til Svíþjóðar. Svo það er eitthvað að gerast á næstunni. Hlakka mjög til að byrja í skólanum. Eitthvað nýtt að gerast ekki same old versló. Maður á nú eftir að sakna ýmissa hluta úr versló en svona er þetta:D

kv. Fanney Björk

Sexy Back yeah

13. ágúst 2006 klukkan 22:18
Skellti inn myndum af Gay Pride, þær eru hérna til hliðar, ef einhver hefur áhuga á að líta á myndir. :D




kv. Fanney Björk

Gay Pride á morgun:D

12. ágúst 2006 klukkan 01:12

Það er víst að maður taki bara móður sína í hátíðargönguna á morgun:) Fólk fer örgla halda að ég sé lesbísk, alltaf að tala um þetta. En hérna Kalli er víst farinn í veiði yfir helgina þannig að það verður bara legist í nammiát og frjálsíþróttagláp.

En já talandi um frjálsar, við Soffía erum nú búnar að vera glápa á þetta undanfarna daga og hástökkið hefur verið með skemmtilegustu greinunum. Héldum eiginlega bara með öllum, bara á meðan þeir fóru yfir. Þannig það var alltaf öskrað þegar eitthver fór yfir. Ótrúlega gaman. Greyið hún Kajsa Berquist sem lenti í 3 sæti. Pæliði í sko pressunni á henni. Hún átti bara að vinna og kom örgla í þessa keppni vitandi það að hún ætlaði að vinna og allir ætluðust það af henni. En stundum fer þetta svona:D

Hérna eru nokkrir geggjaðir frjálsíþróttamenn og konur:)




Fyrsta myndin er af Francis Obikwelu sem vann bæði 100 og 200 metra hlaup, ótrúlega magnaður gaur. Svo þar við hliðin á kemur Carolina Klüft sem vann 7 þrautina og keppti líka í langstökki. Vann 7 þrautina, þvílíkt yfirburða íþróttakona. Þar á eftir kemur Andreas Thorkildsen, en hann er þvílíkt flottur spjótkastari. Alveg eins og hann þurfi ekkert að hafa fyrir því að kasta yfir 88 metra í spjóti. Svo kemur Tatyana Lebedeva, en hún er langstökkvari og þrístökkvari. Þvílíkt spennandi keppni sem fór fram í þrístökkinu, þar var ég alveg á nálum líka. Í seinasta stökkinu, reif hún af annarri sigurinn og mætti mótsmetið einnig. Þvílíkt mögnuð. Svo auðvitað verð ég að setja mynd af Yelenu Isinbayevu, en hún er stangarstökkvari og er sú besta í heiminum. Kemst enginn nálægt henni, en hún er að fara stökkva um helgina, þannig það verður gaman að sjá hvernig það fer.
Það er einnig hægt að setja mynd af Stefan Holm sem er ótrúlega magnaður hástökkvari. Svo og Kajsa hástökkvari. Hún er þvílíkt flott líka.

Þetta var svona smá innsýn inn í frjálsarnar.

Kv. Fanney Björk

Ekkert blogg bara hmm í langan tíma

10. ágúst 2006 klukkan 20:53
Langt síðan ég hef bloggað. Eitthvað vesen með þetta blogg þegar ég ætlaði mér að blogga seinast. En allt í lagi.

Það eru svo alltof fáir dagar í skólann. Það er ekki einu sinni fyndið. Mín að fara byrja í nýjum skóla, það er soldið eins og maður sé að fara byrja í menntaskóla aftur í 3 bekk. Hlakka ótrúlega mikið til. EN mig langar samt að vera í sumarfríi lengur. Þar sem ég er í alvöru sumarfríi. Heavy næs.

Maður er bara búin að æfa í sumar og svo hafa það gott bara. Ég og Kalli eyddum verslunarmannahelginni hérna í bænum bara. Þvílíkt næs verslunarmannahelgi. Kalli lærði stangarstökk og núna er bara ekkert hægt að snúa til baka. Hann er orðin gjörsamlega húkt á þetta hehe. Honum gekk þetta þvílíkt vel líka á æfingunni. Hann erbara með þetta í blóðinu:P En það var rosalega gaman að fara á öðruvísi stangarstökksæfingu. Kenna alveg frá byrjun. Frekar mikið stuð. Soffía er líka búin að fara í kennslu hjá mér og er hún líka mjög efnileg.

Frjálsar hafa verið sýndar í sjónvarpinu núna undanfarið og hvað gerir frjálsíþróttakonan sjálf að sjálfsögðu glápir hún á imbakassann. En í dag var víst geggjuð rigning. Þannig að í morgun gat maður bara horft á 50 km göngu sem er ekkert í uppáhaldinu mínu. Mér finnst bara ótrúlegt að nenna að labba í 4 tíma alveg á fullu. Tek bara ofan fyrir þeim. Hlakka bara til að sjá stangarstökkið um helgina. Ef þeir sýna eitthvað af því.

Sif fór út til danmerkur í gær, sussussuss hvað það verður gaman örgla hjá þeim píum.

Ég hlakka bara til að fara til Svíþjóðar á norðurlandamótið en það er í byrjun september en þetta er mitt seinasta norðurlandamót í þessum flokki frekar súrt en þá fer maður vonandi bara á hitt sem er fyrir eldri. Mér finnst ég orðin svo gömul, komin í 19-22 ára flokk. Dottin útúr flokkaskiptingunni á Svíþjóðarmótinu eða þetta var síðasta árið mitt. Því þaðer bara uppí 19 þannig ég er officially orðin kona að svía mati. Það er líka súrt. Herðu svo er bikar að fara koma og hann verður haldinn á sauðarkróki. Því miður því að skólinn verður byrjaður og þá þarf ég líklegast að skippa degi í skólanum en þetta kemur allt í ljós.

Herðu ég er orðin þvílíkur lestrarhestur líka. Ég er eilla aldrei í tölvunni. Frekar fer bara að lesa. Er núna að lesa einhverja stelpubók og hún er bara mjög spennandi og skemmtileg. Þannig það er soldið skrítið, Fanney að lesa hmm skemmtilegt nokk.

Herðu næsta helgi. Er búin að hlakka soldið lengi til helgarinnar, því það er gay pride um helgina. Ég og Kalli ætlum að skella okkur í gönguna, held bara í höndina á honum svo að hann verði ekki misskilin hehe, fyndið hvað það er ekkert mál fyrir stelpur að fara horfa á þetta og vera ekkert hræddar við að fólk haldi að maður sé gay. En strákar eru svo eitthvað svona hræddir um að sjást í sjónvarpinu eða eitthvað. En þetta er bara árlegt thing sem ég geri. Ég hef svo gaman að þessu. Sif missir af essu, kannski sér hún danska gay pride hehe ef hún er heppin. Held ég hafi sótt næstum allar göngurnar hjá þeim. Ég segi bara ekki missa af essu. Þetta er ótrúlega skemmtilegt. Líka í endann á skrúðgöngunni eru skemmtiatriði og ef það er jafn skemmtilegt og í fyrra, þá verður maður ekki fyrir vonbrigðum:D

En alla vega ef þú nenntir að lesa þetta allt þá klappa ég fyrir þér:D

kv. Fanney Björk gaypridefan

Hve mikið nörd getur maður verið?

04. ágúst 2006 klukkan 00:40
Herru hvað geri ég þegar ég vakna í morgun, jú ég borða morgunmat sem vildi svo vel til að mjólkin var orðin að súrmjólk og það var viðbjóður. Svo fer ég aftur uppí rúm og klára harry potter bókina. Það hefur tekið mig alveg frá jólum að klára hana. Eða meira svona daginn í gær og dag. Því ég las ansi mikið. Ég þúst ég les aldrei.....herru svo tók við enþá meiri nördaskapur. Fór ég ekki í playstation 2 tölvuna mína og fór að leika mér í henni. Svo kom Soffía og joina inn náttla. Herru svo enduðum við þetta á góðum singstar hehe. Svo fór ég bara á æfingu. Er nýkomin heim. Hve langt getur nördaskapurinn gengið. Get sagt eitt að þetta var góður dagur.

kv. Fanney aldreiverðandi nörd

Jæja þessi helgi líka farin, solítil gremja í essu bloggi

01. ágúst 2006 klukkan 01:20
Well well, þá er liðin vika síðan ég bloggaði seinast eða svo. Já ég var að keppa á meistaramóti íslands um helgina. Var bara ánægð með árangurinn, vann stöngina með 3.40, hef ekki farið svo hátt í sumar. Svo ég var bara sátt. Fór síðan í boðhlaupið og við stelpurnar urðum í 3 sæti. Svo fór ég í hástökk sem var bara eitt disaster verð ég að segja. Lenti í alveg neðsta sætinu. hehe...sem var bara allt í lagi. Var bara ánægð með helgina.....kellurnar í ÍR unnu bikar. Semsagt við:) Svo urðum við í 2 sæti í heildarstigakeppninni unnum með 2 stigum hærra en breiðablik yeah. FH rústaði þessu allsvakalega.

Mér finnst alveg fáránlegt eitt, þetta frjálsíþróttamót var sýnt í gær í sjónvarpinu. Herru það var sýnt eftir 12. Hvaða maður með réttum litningafjölda getur hugsað sér að einhver nenni að horfa á það þá. Sá maður eða kona held frekar það sé samt maður heldur að frjálsar hækki sig um sess í þessu þjóðfélagi bara á Íslandi. Þúst það horfir enginn á frjálsar eftir miðnætti. Þetta er bara rugl. Þoli ekki heimska fréttamenn. Því þeir eru auðvitað allir fótboltamenn og er alveg skítsama hvort frjálsarnar séu bara helst um 4 um nóttina. Svo enginn áhuga verði á íþróttinni. Mér finnst þetta bara dónaskapur gagnvart öllum í frjálsum og þeim sem standa að frjálsum íþróttum.

Svo þegar maður kíkir í blöðin. Hvað sér maður, ein langstökksmyndin var svona önnur höndin og klippt rétt neðan við höku og svo auðvitað hausinn. Svo voru endalausar stafsetningarvillur og ekki einu sinni rétt úrslit. Herru svo sér maður í miðju blaðsins venjulega svona fótboltaþjálfara í einhverju ómerkilegu félagi vera að tala saman og það er geggjað merkilegt. Herðu hann hannes og jón eru að tala saman örugglega um næsta leik. Sá leikur á örgla eftir að vera frábær. blablabla...halló hefur enginn fattað að við sökkum svo feitast í fótbolta að það er ekki einu sinni fyndið.

En nóg af þessari gremju...   það er alltof stutt í skólann. Langar alveg að byrja í skólanum, en mig langar samt að vera lengur í sumarfríi. Þannig að þetta er nú erfitt.

Ég fór í garðinn í dag og gerði fullt af gloríum þar í dag. Svo ryksugaði maður allt húsið líka:D Rosalega gott veður í dag. Reyndar fyrir utan smá rigningu sem kom en ég held að ég hafi drepið þá örgla lítinn járnsmið, það getur ekki annað verið bara.

kv. Fanney Garðyrkjukona

Svíþjóð

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit