Ađalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Íslandsferđ:D

Fanney Björk komin heim

20. júní 2006 klukkan 18:40
Ójá, þá er það ferðasagan, sem ég náttla bara nenni ekkert að segja frá.

En þetta var nú ofsalega skemmtileg ferð, mikið hlegið og fólk að bæta sig. Hefði viljað ganga betur....en það er ekki alltaf þannig...

Nú er maður bara farin að hlakka til danmerkur yeah.....6 dagar í það..

Soffía búin að athuga með búðir og svona, og það er það sem maður er að fara gera þarna, þar er að versla og æfa sig. Svo fer ég til svíþjóðar í endann á ferðinni og tek ungdomspelen á þetta. Það verður örgla mjög gaman, alla vega finnst mér þetta svo skemmtilegt mót!

kv. Fanney Björk

10 tímar í brottför:D

14. júní 2006 klukkan 23:21

Úff verð að segja að ég kvíði soldið fyrir ferðalaginu til Slóvakíu.
Mætum klukkan 4 í fyrramálið eða þegar ég er búin að sofa kannski í svona 3 tíma. Svo leggur rútan af stað klukkan 4:30. Förum í loftið klukkan 7:55 og lendum um 1 leytið að staðartíma í Amsterdam, þar þurfum við að bíða í 2 tíma til að taka flug frá Amsterdam til Ungverjalands og verðum komin þangað um 5 leytið, þaðan förum við með rútu í 3 tíma til Slóvakíu. Vá þetta verður vonandi fjör:D

Það er alla vega fullt af skemmtilegu fólki í för með, þannig þetta verður gaman:D
Núna er maður bara að fínpússa hvað maður ætlar að taka með, er búin að pakka sko. Bara snyrtidótið eftir:)

Á ég líka að segja ykkur annað, það er spáð 33 stigum á laugardaginn og part cloudy, erum við að tala um steikingu....sjitturinn! Vonum bara að maður deyi ekki úr hita:)

Hafiði það gott um helgina lömbin mín. Það eru 10 tímar í að ég þurfi að mæta niðrá ÍSÍ. Vonum bara að stangirnar komist alla leið:)

Kv. Fanney Björk

Slóvakía!:D

12. júní 2006 klukkan 23:59
Núna eru 3 dagar í Slóvakíu, hlakka bara til, er að fara á fund á morgun um þetta og svona. Þannig maður er byrjaður að hugsa hvað maður taki með og svona, svo fórum við mamma í verslunarferð áðan. Keypti mér flottar kvartbuxur. Og líka stuttbuxur, ekki svona íþrótta heldur hinsegin!

En alla vega er ekkert mikið að gerast, fór á æfingu í klikkaðri rigningu klukkan 12 í hádeginu. Sem var bara fínt.

Annars var helgin bara ótrúlega næs, fór í sund með Kalla í gær. Ótrúlegur letidagur tekinn á þetta. Laugardagurinn var matarboð og svo rólegheit.

Svo ömm föstudagurinn þá hitti ég Sif um 1 leytið af tilviljun eilla. Við fórum bara á rúntinn þangað til fram á rauða nótt. Það var heavy gaman:D

Svo núna er maður soldið svona ohh dem að eiga engan pening og maður er að fara til útlanda. Rosalega sniðugt. Þetta reddast einhvern veginn!

Hlakka bara til híhí. Alltaf gaman að hlakka til!

kv. Fanney Björk

Landsliđiđ yeah

09. júní 2006 klukkan 06:22

Herru þessi vika er þá á enda eða allavega vinnulega séð.

Semsagt ef við segjum fyrst frá því skemmtilega þá var ég valinn í landsliðið í stangarstökki og fer ég út á næsta fimmtudag:D Er heavy ánægð mahr!

En ég fór semsagt með Kalla á ættarmót seinasta sunnudag. Hef bara ekki dansað svona mikið síðan langt síðan hehe. Langt síðan maður dansaði semsagt svona mikið. Það var ótrúlega gaman og allt fólkið hans magnað. Gistum í fellihýsinu þeirra. Það var bara næs. Svo ætluðum við í pottinn en það var næstum því ekki hægt að koma nálægt þeim, því það var svo mikil skítalykt af þeim. Því miður rigndi svo mikið daginn eftir þannig það var ekki hægt að gera mikið meira en að liggja í leti. Fórum svo í sund á mánudeginum, ég, Kalli, Sóley, Ingvar og Áslaug. Geggjuð sundlaug á Hvolfsvelli.

Svo fór maður í vinnu á þriðjudeginum. En Sif fékk að keyra bílinn, þannig við vorum bara með okkar eigin tónlist með 3 litla 16 ára gaura með okkur aftur í hehe. Get nú ekki sagt að það hafi verið skemmtilegur vinnudagur. Svo miðvikudagurinn var alveg horror sko. Það rigndi allan daginn og maður var alveg blautur í gegn og við þurfum að bera ótrúlega þunga skjólveggi einhverja 500 metra í móa og svona misfellu. Þetta var alveg hræðilegt og ég hélt að við Sif ætluðum að gefa upp öndina. Svo fengum við sem betur fer að fara inn. Svo kom líka Soffía heim. Maður feginn að fá stóru systur heim. Hún er sem betur fer heil á húfi. Bara ótrúlega brún mahr. Ekkert smá hvað hún getur náð miklum lit. Ég hvíta hvíta sko. En ég er  nú bara sátt með húðlit minn. Ég safna lit svo hægt og hljótt hehe:P

Í dag er fimmtudagur og það var miklu meira næs að vinna í dag vegna þess að við vorum bara nálægt holtagörðum að slá eða eins og ég segi alltaf að ryksuga grasið hehe. Það var rosa næs. Því að það var ekki erfitt og sólin skein líka stundum sem er mikill plús. Þannig mín er doltið með rauðar kinnar. híhí. Vorum bara ótrúlega dullegar...en það kom alveg stór pása því að verkefnin voru búin þannig við fórum bara að þrífa bílinn svo bóna hann og svona, reyndar sáum við Sif um að bóna sitthvorn spegilinn þá sko hliðarspeglana hehe.

En í dag tók ég þá ákvörðun að hætta að vinna. Þar sem ég get ekkert æft með þessari vinnu. Hún er bara of erfið til að geta áorkað einhverju á æfingu. Eyðileggur fyrir mér æfinguna. Langar oftast ekkert til að fara á æfingu. Afþví maður er bara búin eftir daginn. Það er líka soldið mikið að vinna frá 8-18 og svo beint á æfingu frá 18-20....það er ekki sniðugt. Þannig að já ég er  hætt að vinna. Er að fara út eftir 6 daga og svo 17 daga aftur til útlanda, þannig nóg að gera. Ætli maður reyni ekki að finna sér aðra vinnu síðan þegar maður kemur heim 10 júlí. Hlakka bara ekkert smá til að fara til útlanda. Fyrsta skiptið í landsliðið þannig að maður fær vígslu. Þetta verður meiriháttar stuð:D
Kv. Fanney hin hamingjusama Björk

Jćja....

03. júní 2006 klukkan 06:10
...fyrsta vinnuvikan búinn og hvað gerði  ég og Sif til að fagna því....jú við bökuðum hehe. Tókum okkur til gellurnar og bökuðum! Kom til Sifjar um 12 leytið. Tjékkuðum hvað okkur vantaði, fórum svo í bónus og krónuna og keyptum það sem við þurftum.

Svo komum við heim til Sifjar og bjuggum til 2 tegundir af smákökum og erum við að tala um að þetta séu bara bestu kökur í heimi hehe. Ég held það bara! Svo er fólk að hnussa yfir því að það er sumar....hmm það sko stendur ekki neins staðar að það megi bara baka smákökur um jólin, alla vega hef ég ekki enn fundið þá reglu! Allavega. Þetta eru rosalega góðar kökur og gaman að breyta útaf laginu.

Herru svo skellti maður sér á æfingu og svona. Herru ég fór síðan með Kalla í pool í kveld og getiði hver hafi unnið. Nei þið giskuðuð vitlaust því að ég vann hann 3-1. Hugsiði ykkur ég vinn aldrei pool. Venjulega fer það 7-1 hehe fyrir honum. Vá það var sko sweet að vinna. Hef aldrei unnið svo mín er bara ánægð! Hann var nú ekki sáttur með tapið hehe. Enda vorum við líka á borði 7 sem er náttla mín uppáhaldshappatala!

En hérna það er margt að gerast þessa helgi. Á morgun erum ég og Kalli að fara út að borða með fullt af fólki. Núna er bara að ákveða í hvaða klæðnaði maður eigi að fara. Ég hef nú allan daginn á morgun sem betur fer. Svo á sunnudag yfir á mánudag. Þá er ættarmót hjá Kalla. Þannig við erum að fara þangað og þangað er bara útá land. Það verður örgla stuð. Gistum eina nótt þar. Svo fer maður í vinnuna aftur á þriðjudag þannig að þessi 4 daga helgi er alveg æðisleg!

kv. Fanney Björk

ţreyta

01. júní 2006 klukkan 00:48
jæja þá er maður búinn með 3 vinnudaga af sumarinu! þetta er búið að vera fínt og strembið! Ótrúlega þreytt alltaf eftir daginn! frekar óþægilegt því ég er aldrei þreytt á kveldin...er meira svona kveldmanneskja ef það er er eitthvað... hef voða lítið að segja. Er að vinna uppá nesjavöllum eða reyndar sko í straumsnesi...verð nú að segja að það var leiðinlegasti vinnudagurinn í dag af þessum 3....sko á fyrsta degi þá brann maður svona rosalega vel í framan...

Hef voða lítið að segja, nema ykkur langi að vita hve þreytt ég er! Þá er ég alveg á leiðinni að skrifa ritgerð. En það var svo mikil drulla og rigning í dag að það var viðbjóður....svo löbbuðum við ég veit ekki hvað langt til að bera á tré....

Við Sif erum með 3 strákum í hóp! Þeir er ágætis fýrar ef maður dönskuslettar þetta aðeins og + svo íslenskunni við! En þeir er soldið svona rólegir í tíðinni....ekki eins miklir trúðar eins og við Sif

Hef einhvern veginn ekkert að segja. Það gerist ekkert markvert í mínu lífi núna. Vinnan er bara vinnan og æfing er bara æfing....svo gerir maður eitthvað á kveldin...það er hefur ekkert krassandi gerst seinustu 3 daga. Nema við Sif höfum hlegið úr okkur lungun og fengið að mála ansi mikið! Það er gaman. Erum náttla langbestar í málunardeildinni!

Jájá ég kannski blogga einhvern tímann seinna. Maður hefur engan tima til að blogga, er voða lítið í tölvunni. Fer bara í vinnuna er þar til 6 svo á æfingu frá 6-8. Borða kveldmat og fer svo í sturtu. Hitti síðan Kalla eða slaka á.

kv. Fanney Björk

Svíţjóđ

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit