Ađalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Íslandsferđ:D

SOS

28. apríl 2006 klukkan 17:49
Ég var í mjög ósanngjörnu prófi áðan...tölum ekki meira um það, ég er búin með 18% af prófunum....þetta kemur allt á endanum.

Er ekkert að fatta að ég sé byrjuð sko....

En erum við að tala um hvað er ógeðslega illa gott veður úti sko. Ég fór út á stuttermabol...eins gott að þetta haldist því mig langar í sól.....

Núna langar mig ofboðslega í sund. Ekkert smá sko! Næst ætla ég mér að læra undir stærðfræði....sem er nú betra en margmiðlun...þótt að margmiðlun sé skemmtileg ef maður býr til skrímsli eða eitthvað annars ekki....

kv. Fanney Björk

Making monster

27. apríl 2006 klukkan 20:50
Fyrsta prófið búið bara 10 eftir. Var í ritgerðarprófi í Íslensku og það var óttalega fínt bara. Gekk bara vel. Efnið sem ég valdi mér var sko eitthvað á að malbika og reisa hótel á hálendi Íslands. Ég skrifaði einhvern heilan helling um þetta og meðal annars tékkaði hvað ég skrifaði mörg og og hve mörg sem, það sem kom útúr því var einfaldlega (45 =og) (35 =sem)...svo tékkaði ég líka á kannski.....þannig ég breytti nú aðeins ritgerðinni til að þetta væri ekki áberandi mikið hehe:)

Á morgun er margmiðlun...hlakka ekkert sérstaklega til sko....allt etta rugl er rugl...en mín er að búa til skrímsli sem er ótrúlega gaman hehe:) Það verður rautt..hitt skrímslið sem ég bjó til var bleikt, ótrúlega flott:) híhí...þetta er ekki svona ógnandi skrímsli...bara svona sem blikkar þig....meiri daðrari ef eitthvað er.....hehe skrímsl sem daðrar...skondið nokk! Hérna er það :) Fyrsta skrímslið sem ég gerði...það blikkar sko. Bara get ekki sett blikkandi skrímsli því miður á netið:) Kannski seinna.


ENDILEGA KOMMENTIÐ Á FEGURÐ SKRÍMSLISINS MÍNS:) HANN HEITIR GULLI:)

Ohh ég er komin með svo geggjuð lög núna og er náttla að hlusta á þau....gaman gaman:) Efast sterklega um að vera sterk í blogginu núna yfir prófin. Verð bara aktív í sumar:) vívíví

Held ég hafi gleymt að skrifa að ég fékk nýja stöng á þriðjudaginn....það var ekkert smá gaman. Hún er alveg appelsínugul ekki eins og hinar sem er búið að detta liturinn af....það verður gaman að prufa hana mahr..hlakka ekkert smá til:)

kv. Fanney Björk

Herru hotmail miskilningur og nýr búningur:)

27. apríl 2006 klukkan 00:42
Herru ég er svo über klár skal ég ykkur segja en ég var að fatta núna hvernig maður ætti að fást við hotmailið mitt....nefla alltaf þegar ég fékk póst þá kom það bara útúm allt, ekkert svona allt á sama stað og þá er ég að tala um semsagt nýjustu bréfin eða emailin...og ég áðan var bara hmm...best að gera þetta eins og í itunes að ýta á það sem maður vill hafa raðað eftir og viti menn það virkaði...þannig ég er með raðað núna eftir dagsetningu...svona getur maður verið klár stundum sko:)

Hey og ég var líka að fá ógó flottan ÍR búning....sjæse hann er svo flottur:) Sko með nafninu mínu á og allt....

kv. Fanney hin Klára

I Am A Thunderdome Baby

26. apríl 2006 klukkan 18:49
SvalurHerru núna er allt bara orðið fjólublátt og ótrúlega flott vívíví. Vantar samt svo að þessi layer verði með báðum megin...hægt að setja linka og solleis...leiðinlegt er það..Ullandi

En alla vega maður mætti í skólann í dag....alveg illa fersk klukkan 8 í morgun....byrjuðum á ensku..kennarinn ákvað að koma með nammi handa okkur. Sem við að sjálfsögðu gæddum okkur á. Svo fórum við í sögutíma og glósuðum þar alveg heilan helling. Eins og Huldu er best lagið... herru svo tóku strákarnir uppá því að gera skoðanakönnun innan bekkjarins....svona mesti töffarinnSvalur og kennarasleikjan og ýmistlegt fleiri...svo fundu þeir útur könnuninni eftir tímann hjá Huldu og það kom rosa skemmtileg útkoma hehe:) Gaman að essu....svo fórum við í hlé vegna þess að við þurftum að mæta í forritunartíma ......þurftum sem betur fer að vera ekki lengi. En maður var komin heim um 12 leytið og er núna á fullu að læra margmiðlun....yeah ótrúlega gaman sko:)

kv. Fanney BjörkGlottandi

Bara tjékka:) daddara

25. apríl 2006 klukkan 15:45
Ég býst við því að ég hafi þetta ekki í þessu formi, vonum að annað form á þessari síðu kemur og hægt sé að breyta hausnum. því maður sér ekkert hvar maður á að gera athugasemdir, en þær eru sko fyrir neðan bloggið. Stendur svona litlum gráum stöfum....voða erfitt að sjá:)

Ég horfði á Harry Potter mynd númer 4 í gær og hún var virkilega löng en mjög skemmtileg þykir mér....svo ætlar maður nú að reyna lesa bókina í sumar. Ef maður nennir....prófin eru að skella á bara fyrsta á fimmtudaginn og svo á föstudaginn líka. Alveg killer sko! Svo er ég alveg í prófum til 19 maí....en þann 20 er eurovision....eins gott að við komumst áfram:) Held að það verði eiginlega pottþétt.

Sturtan vígđ

22. apríl 2006 klukkan 23:40
Ég fékk heiðurinn mikla af því að vígja sturtuna okkar hérna. Því pabbi er núna búinn að laga hana og maður hefur ekki getað farið í sturtu í alltof margar vikur. Eða alltof marga daga þannig ég var sú fyrsta til að stíga fæti inní sturtuna og það gekk bara vel verð ég að segja. Ég er alla vega hrein og fín. Held að sturtan sé líka bara ánægð með þessa breytingu. En þetta er reyndar ekki sturta heldur sturtuklefi. Svo rosalega stórt.:) híhí

Annars er ég búin að vera læra rosa mikið í þýsku í dag, þangað til ég ákvað að fara í sturtuna og svo sótti ég ömmu mína sem er einmitt í mat hjá okkur sem byrjar eftir svona 5 mínútur.

En í gær horfði ég á Beauty and the geek, þvílíkir snilldar þættir verð ég að segja. Dýrka þá:)

Endilega kommentið svo á essa síðu, flott eður ei....nema þið hafið gert það á blog.central síðuna. Gaman líka að vita hvaða rugludallar eru að skoða síðuna mína;)

kv. Fanney Björk

Myndir af myndum ofan

21. apríl 2006 klukkan 05:04
Herru mín búin að bæta fullt af myndum í myndaalbúmið svo endilega kíkja í það. Svo líka búin að bæta við fleiru.....þessi síða er öll að koma til ;)
Er annars farin að sofa.... því það er skóli á morgun...vívíví...
Nenni satt að segja ekkert í skólann á morgun. En svona erþetta...fínt samt að fá frí í dag.....góða nótt
ta ta

It's like Magic

20. apríl 2006 klukkan 15:54
Langar bara að segja góðan dag. Þar sem það er örugglega góður dagur hjá öllum nema þeim sem eru að læra og finnst það ekkert ofboðslega gaman eins og mér. Ég er að fara verða dugleg in a minute sko. Er að drekka magic, til að kerfið fari í gang vei:) En hérna foreldrarnir og systirinn skelltu sér í sund saman..ossa gaman sjæse. ÉG ákvað að vera heima. Sumardagurinn fyrsti er venjulega rigningardagur eða bara snjókoma en það virðist vera bara gott veður í dag:) Skemmtilegt ha. Ég veit alla vega eitt, að mig langar til útlanda og mig langar að vera svona brún:) híhí

Vona að þið hafið eins góðan dag eins og ég yfir lærdómi. Langar í nammi, so illa mikið í nammi:S En ég er með gos. Hey fór að þjálfa í gær og það var bara ágætt verð ég að segja. Svo fór ég í matarboð til Kalla míns og það var líka rosa fínt.
Enskan bíður mín!

ta ta
kv. Fanney Björk

Drops a Jupiter

19. apríl 2006 klukkan 00:17
Ég er ennþá illa að spá í að færa mig hingað yfir. Það kemur bara í ljós. Ætla aðeins að rugla í henni meira áður en ég ákveð mig alveg. En mig langar rosa að breyta til. Þar sem það eru miklu meiri möguleikar í þessari síðu. Náttla á frekar margar síður núna til að velja úr:) hehe kommer i lys bara eins og ég segi alltaf:)

Herru ţessi síđa alveg ađ gera sig

06. apríl 2006 klukkan 18:51
Ég er að hugsa um á einhverjum næstu dögum örugglega að færa mig á þetta. kommer bara í lys:D

Bara prufa sjćse

05. apríl 2006 klukkan 20:18
Athuga hvernig þetta blogg kemur út....gaman að hafa mörg í gangi...maður verður að velja og hafna:S

Svíţjóđ

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit