Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Íslandsferð:D

KRULLAN FÆR SÉR SMÁ BLUND

16. ágúst 2008 klukkan 13:45
ERUM KOMIN MEÐ NÝTT BLOGG

http://www.bredgatan.bloggar.is

ENDILEGA KÍKIÐI Á ÞAÐ OG KOMMENTIÐ AÐ VILD
ÞETTA BLOGG VERÐUR SETT Í SMÁ DVALA :D

KV. FANNEY BJÖRK

Hellúú

15. ágúst 2008 klukkan 16:24
Núna erum við komin til Svíþjóðar eftir smá ferðalag.
Fórum fyrst í verstu flugvél sem iceland express hefur uppá að bjóða, fólk var líka bara ekki sátt. EN svona er þetta
Svo komum við til Danmerkur og fórum í lestina til Svíþjóðar sem var bara nokkuð fljót á leiðinni. Síðan þurftum við að labba smá spöl að íbúðinni okkar. Þar hittum við konuna sem á íbúðina sem er að leigja okkur hana út. Hún sagði okkur allt sem þurfti að vita um hana og svona. Erum semsagt með sjónvarp sem var reyndar bilað útaf snúrunni sem fer í það, en við Kalli keyptum okkur bara nýja og sjónvarpið gengur bara eins og í sögu. Þvílíkt næs, erum með ótrúlega margar stöðvar...þannig maður getur horft á ólympíuleikana á bæði dönskum stöðvum og sænskum, svo eigum við líka að vera með eurosport, er ekki alveg búin að finna það út.

Svo fórum við út í göngutúr um hverfið eða svona miðja lund, fengum okkur mcdonalds að sjálfsögðu. Svo er HM búð þvílíkt nálægt en ólíkt mér þá er ég ekki búin að skoða hana hehe:D En það kemur bara á morgun hugsa ég. Svo þegar við vorum búin að labba af okkur fæturnar þá fórum við að versla inn, eitthvað sem við þurftum á að halda, eins og mat og fleira. Svo löbbuðum við smá spöl heim til okkar.

Þá tók við allsherjarhreingerning á húsinu. Það er hreint en við vildum gera það Kalla og Fanneyjar hreint hehe...
Það átti víst einhver hreingerningadama að hafa þrifið húsið. Við gátum ekki séð að hún hafi gert það vel. En við þurfum líklega að taka annan hreingerningardag á þetta á morgun.

En í dag fórum við út að labba. Semsagt hérna í lund þá getur maður labbað allt sem maður vill, því það sem maður þarf er í mesta lagi í 30 mínútna göngufjarlægð...nema maður fari í stóru búðirnar. Fórum semsagt í leit að interneti en við vorum búin að fara í þá búð 2svar fyrir. Þá sagði maðurinn í þeirri búð að við yrðum að vera með svona kennitölu í Svíþjóð. Kalli sagðist vera með svoleiðis en hún var greinilega ekki lengur í gildi eða maður þarf líklega að aktivera hana. Þannig strákurinn sagði okkur að labba svona í 20 mínútur í skatteverket til þess að fá svona númer fyrir þá mig og hann. Herðu þá sögðu þau þarna á skatteverket okkur að við fengjum þessar kennitölur eftir 15 daga, og við vorum bara obbobbobb því að þá gátum við ekki farið á netið eða neitt eða fengið netið, og hefðum við ekki verið svo heppin að vera með imbakassann þá hefðum við ekki getað fengið sjónvarp heldur ef við værum ekki með svona kennitölur. Þannig að við hugsuðum þá verðum við bara án internetsins. Kalli var alls ekki sáttur. En við fórum síðan í búð að kaupa í matinn og svo eitthvað dót sem okkur vantaði. Fórum síðan heim og erum búin að vera að horfa á ólympíuleikana. Þá hugsa ég bara best að prufa að fara í tölvuna og sjá hvað gerist. Herðu þá bara gátum við farið inná opið internet sem er hér í húsinu hehe. Þvílíkt næs. Þannig við erum ekki alveg dauð í öllum æðum hérna á Breiðgötunni.

Svo í kvöld erum við að fara hitta Massih sem er gamall vinur Kalla en hann er með einhvern hitting heima hjá sér. Hann kemur og sækir okkur á eftir. En hann á heima aðeins fyrir utan 20 mínútna labbhringinn. Þannig það verður næs.

Þetta er orðið massíft blogg hjá mér. En ég held að venjulega kókið í Svíþjóð sé næst á eftir íslenska diet kokinu mínu. Erum að prufa okkur áfram í þessu hehe.

kv. Fanney og Kalli í Svíþjóð

3 tímar í að ég á að vakna hehe

14. ágúst 2008 klukkan 00:26
Svíþjóð here I come :D
Ég er víst að fara sofa núna.
Ætlaði bara aðeins að blogga og segja að ég verð ekki í tölvusambandi fyrstu dagana held ég.
EN ég mun pottþétt blogga þegar ég kemst í samband:D
Hafiði það gott á kalda Íslandi....ég ætla allavega að hafa það frábært í Svíþjóð:D

kv. Fanney sænska

Ómægod:P

12. ágúst 2008 klukkan 12:03
Ómægad ómægad ómægad ómægad ómægad já ómægad......ég er að fara flytja út eftir bara svona umþað bil rúma 43 klukkutíma....jámm þá förum við í loftið eða nánara sagt um 7 á fimmtudagsmorguninn.

Núna er maður bara á fullu að pakka niður öllu draslinu sínu. Þetta er ekkert eins létt og maður hélt, maður þarf að taka líka annað drasl með sér eins og tölvuna og ipodhátalara og eitthvað sem tengist þessu og öðru...þannig þetta er stuð:D
En mor og far koma nú út rétt á eftir okkur þannig þá er hægt að fylla þeirra ferðatöskur líka:P

hef þetta ekkert lengra, ætla halda áfram að pakka. svo munum við kalli fá okkur blogg saman og það verður að sjálfsögðu auglýst á síðunni minni hvað það verður, þá verður hægt að fylgjast betur með okkur hjúunum:D

kv. Fanney Björk sænska

...

28. júlí 2008 klukkan 22:40
Það sem er að gerast og hefur gerst og er að fara gerast í mínu lífi:

Flytja til Svíþjóðar er að sjálfsögðu efst á lista
Hætta í vinnunni sem var bara thing útaf fyrir sig.
Bjó til boli og er að selja á netinu með Soffíu, hún er að selja geggjuð föt á netinu.
Keppti á 2 mótum, var ánægð með annað en hitt gekk ekki vel.
Er í sjúkraþjálfun og það gengur vel, fóturinn vonandi að braggast.
Er að fá innlegg, búin að fá þau og þau eru hrikalega, er búin að breyta þeim svona 10 sinnum og er að fara breyta þeim aftur. Frekar pirrandi.
Ég og Kalli keyptum okkur æðislega myndavél, hún tekur mynd þegar maður vill. En ekki eins og mín gamla hehe.
Bíllinn minn dó. Gamli grár gaf sig og sagði bara nei ég er hættur. Hann hætti samt ekki alveg því hann getur farið aftur á bak. En það er víst bannað að keyra aftur á bak því miður, vegna þess að það er einn af mínum hæfileikum að keyra aftur á bak. Hann var settur víst á haugana, því miður, sakna hans rosa mikið.
Fór á bíó í kvöld á Mamma Mia.....hún er geðveik punktur komm. Mæli einstaklega mikið með henni og líka með því að strákar sjái hana. Þetta er ekkert sérstaklega stelpumynd. Það var svo skemmtilegt því við fjölskyldan fórum saman. Rosa gaman að fara með ma og pa og Soffíu:D Það er mjög langt síðan það gerðist.

Vá það er svo rosalega stutt í að við flytjum út. Það er geggjað, hlakka ekkert smá til. Er ekki ennþá orðin kvíðin eða stressuð eða neitt. Það hlýtur að koma, trúi ekki öðru.


kv. Fanney Björk

Sælt veri fólkið

16. júlí 2008 klukkan 19:17
Já líf mitt er vinna þessa dagana nokkurn veginn, fyrir utan þegar ég er að teikna. Því ég og Soffía ætlum að selja flíkur og allskonar dót á markaði ekki þessa heldur næstu helgi. Hlakka bara til. Soffía er þvílíkt góð í að búa til allskonar föt...þvílíkt talented, en hún var að klára geggjaða hettupeysu, svona síða eins og flestir eru í....en hún er samt öðruvísi en allar peysur sem ég hef séð....ótrúlega flott.

Ég fór í sjúkraþjálfun í morgun, það var svona rosa fínt bara. Vona að fóturinn á mér fari að segja mér að hann sé að lagast eða þannig séð..:P Væri ágætt að fara geta farið að æfa á fullu.

Annars er svo þvílíkt stutt í að við förum til Svíþjóðar, hlakka rosalega til, farið að kitla bara í puttana:P

Hef nú ekki meira að segja.

kv. Fanney Björk

Trukkurinn er dáinn:(

08. júlí 2008 klukkan 19:46
Í fréttum er þetta helst,

trukkurinn minn dó í morgun. Það sem gerðist var það að ég var á leið í vinnu í morgun og bakka greyinu hægt út, svo set ég hann í drive(hann er semsagt sjálfskiptur) þá segir hann nei. Hann bara er stopp og ég er samt á bensíngjöfinni. Það var eins og hann væri í neutral bara. Ég ætlaði ekki að trúa því að hann ætlaði að gefa upp öndina núna. Það er ekki réttur tími. En þetta er satt. Hann verður tekinn á morgun og settur í bílakirkjugarð. Mér finnst þetta svo hrikalega leiðinlegt, því hann lítur svo vel út. Eina sem er að honum er þessi sjálfskipting. En það svarar bara ekki kostnaði að  laga greyið.

Núna fer Fanney í almenningssamgöngurnar. Þá strætó nema ég fari að hjóla upp í smáralind.

Það fer nú að styttast í það að ég fari að flytja af þessu landi, en hugsunin var þó sú að trukkurinn myndi endast þangað til. Hann var ekki á sömu hugsun og ég.

Ég keppti um helgina og lenti í 2 sæti. Það er ekki frásögufærandi sko, ætlaði mér 2 sætið og það fékk ég. Hinsvegar er fóturinn á mér ekki að hjálpa mér þessa stundina, þess vegna lét ég líta á hann aftur í gær. Og læknirinn sagði að ég þyrfti að ganga daglega með innlegg til að létta af brotinu og svo að fara í sjúkraþjálfun. Ég er semsagt að fara byrja í fyrsta skipti í sjúkraþjálfun á morgun. Ætli það verði ekki gaman bara.

Annars er ég alltaf að vinna bara í vínbúðinni góðu í smáralindinni. Það er voða fínt, mæli með að versla þar frekar en á dalveginu til dæmis, miklu minni biðraðir:P Fólk fattar það aldrei.

Soffía kom heim og gaf mér þessa geggjuð eyrnalokka frá chanel. Sem eru by the way algjörlega 100% alvöru. Svo og flott föt:D
Rosa gott og gaman að fá hana heim.:D

Hugsa að ég hafi þetta ekkert lengra:D

kv. Fanney Björk

Bloggedí blogg...

21. júní 2008 klukkan 23:56
Halló halló, ég var byrjuð að skrifa niður þvílíkan pistil um kína og svona og svo var ég bara hmmm, þetta var heavy löng ferð og ég var komin með alveg eitthvað mikið niður og ég sá það bara fyrir mér að ég yrði með sko stærsta blogg í sögunni. Þannig að ég bara algjörlega hætti við sko.

En allt í lagi með það, ég er næstum því búin að segja öllum frá Kínaferðinni og því.

Ég er bara á fullu alltaf að vinna, það er hrikalega fínt. Reyndar þegar maður vinnur alltaf inni þá missir maður af sólinni, því það er auðvitað opið til 6.

Ég fór á grunnskólareunion í gær með Hvassaleitisskóla. Það var ótrúlega gaman og ég tók massíft af myndum.

Ég vona bara að það verði sól á morgun, þá fær maður kannski einhvern smá lit:)
Ég hlakka svo til því Soffía fer að koma heim. Það eru bara 8 dagar í hana:D víví.
Ég er orðin svo mikil húsmóðir. Ég var að þvo fötin mín og hengja upp og gera svona ýmsa hluti. Það var frekar fyndið. Fer mér alveg hrikalega vel líka:P híhí

kv. Fanney


Kínakínakínakínakína

16. maí 2008 klukkan 00:56
Jæjja nú er maður bara að fara til Kína eftir nokkra tíma liggur við:D

BÚIN  að hlaða allar græjur. nú er bara að vakna snemma og redda öllu sem á eftir að redda og svona.

Veit ekki afhverju en fílingurinn er ekki alveg kominn, en ég hugsa nú að hann komi þegar maður klæðir sig í ferðafötin og svona. :D

Var að mata ipodinn af mússík þannig það verður nóg að hlusta á.

Hafiði það gott á kalda Íslandi meðan við erum úti:D híhí

kv. Fanney Björk sem ætlar að koma sólbrún heim:D

Ding dong

14. maí 2008 klukkan 23:33
Komin með skvísu neglur ójá...sátt með það mahr, fór til frænku Kalla og hún gerði þær:D



Varð að fá mér svona núna þar sem ég er að fara til Kína og ekki á leiðinni að stökkva næstu 4 vikurnar, þannig þetta var hrikalega gott tækifæri:D

Annars var ég að kveðja krakkana mína sem ég er að þjálfa í dag. Soldið leiðinlegt en svona er þetta. Svo bara skellti ég mér að hitta Þóru. Góður ísbíltúr sem fór líka smá í pool að hitta strákana.

Annars er ég að fara versla með Karli mínum á morgun, seinasta dótið sem maður þarf:D


kv. Fanney Björk

Svíþjóð

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit